Innlent

Vísir á meðal 100 mest sóttu fréttamiðla norðurlanda

Fréttamiðlarnir visir.is og mbl.is eru einu íslensku vefirnir sem komast inn á listann Topp-100 Nordic Internet Index. Listinn er birtur vikulega yfir mest sóttu vefi á Norðurlöndum. Íslensku vefirnir eru hlið við hlið í 91. og 92. sæti listans. Þetta kemur fram á vef Modernus, teljari.is. Samtök auglýsenda á Norðurlöndum viðurkenna NII listann.

Átta vefmælifyrirtæki standa saman að listanum. Þau hafa öll fengið viðurkenningu frá hópum í faginu, eins og KIA í Svíþjóð og Viðskiptaráði Íslands.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×