Tónlist

Gísli með lag í mynd Luc Besson

Gísli Kristjánsson á lag í kvikmynd Luc Besson, Angel-A.
Gísli Kristjánsson á lag í kvikmynd Luc Besson, Angel-A.

Tónlistarmaðurinn Gísli Kristjánsson á lag í kvikmynd franska leikstjórans Luc Besson, Angela-A, sem var tekin til sýninga í Bandaríkjunum þann 25. maí síðastliðinn.

„Ég var að vinna með stelpu í Noregi, Anja Garbaric, sem þekkir Besson vel. Þegar hann heyrði lögin sem við lögin sem við sömdum saman fyrir plötuna hennar vildi hann endilega nota þau í myndina sem hann var að byrja á þá. Við gerðum eiginlega plötuna og bíómyndina á svipuðum tíma. Hún flaug alltaf til Frakklands til að spila fyrir hann lögin,“ segir Gísli, sem er búsettur í London en var áður í Noregi. Lagið sem Besson notaði nefnist Can I Keep Him auk þess sem hann notaði í myndinni búta úr öðrum lögum eftir þau Gísla og Anja. Samdi Anja jafnframt restina af tónlistinni í myndinni.

Gísli varð þess heiðurs aðnjótandi að hitta Besson einu sinni. „Hann er stórhættulegur,“ segir hann og hlær. „Fólk sem hefur komist langt veit hvað það vill og hvernig það vill hafa hlutina. Það getur verið þægilegt að vinna með svona fólki og maður þarf ekkert að efast um að það segi það sem það meinar.“ Á meðal kvikmynda Besson eru The Fifth Element, Leon, Nikita, The Big Blue og Subway.

Gísli, sem er á samningi hjá útgáfurisanum EMI, er um þessar mundir að undirbúa sína aðra sólóplötu. Sú fyrsta, How About That, kom út árið 2004 við góðar undirtektir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×