Tónlistarmaðurinn Mugison ætlar að ferðast til Memphis í Tennessee, heimaborgar Elvis Presley, í næsta mánuði til að taka upp lög á næstu plötu sína. Þar mun hann njóta aðstoðar nokkurra blúshunda í borginni sem munu leggja sitt af mörkum við upptökurnar.
Platan er væntanleg síðar á þessu ári og segist Mugison strax vera orðinn spenntur fyrir útkomunni, enda sé töluvert efni þegar tilbúið. „Síðasta plata var ástarplata en kannski þessi sé meira svona „midlife crisis“-fílingur þar sem ég er búinn að kaupa mér leðurjakka og fitna aðeins,“ segir Mugison í léttu gríni. „Hún er mjög blönduð. Þarna verður slatti af góðum rokklögum, „powerballaða“ og elektróník. Þetta verður miklu stærri plata en áður með fleiri heilum lögum.“
Upptökur á plötunni hafa staðið yfir í hljóðveri Mugison á Ísafirði að undanförnu og á meðal þeirra sem hafa aðstoðað hann er píanóleikarinn færi Davíð Þór Jónsson úr Flís.
Síðasta plata Mugison, Mugimama is this monkeymusic?, naut mikilla vinsælda þegar hún kom út árið 2004. Fékk hún m.a. Íslensku tónlistarverðlaunin.