Erlent

Breska lögreglan vill fá Lúgóvoj

Alezander Litvinenko, sem myrtur var í byrjun nóvember í fyrra.
Alezander Litvinenko, sem myrtur var í byrjun nóvember í fyrra. MYND/AP

Líklegt er talið að breska lögreglan krefjist þess að Rússar framselji Andrei Lúgóvoj, fyrrverandi njósnara KGB, vegna morðsins á starfsbróður sínum, Alexander Litvinenko. Eitrað var fyrir honum með geislavirku efni. Breska dagblaðið Guardian fullyrti þetta í gær.

Ólíklegt er talið að Rússar framselji Lúgóvoj en hann segir ekkert hæft í fréttum blaðsins. Athygli bresku lögreglunnar hefur beinst að Lúgóvoj eftir að uppvíst varð að hann hitti Litvinenko á hóteli í Lundúnum daginn sem talið er að honum hafi verið byrlað eitur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×