Bíó og sjónvarp

Þjóðsögur á mynddiskum

Þóra og Jóhann bregða á leik fyrir ungna sem aldna í þáttunum þar sem þau fjalla um þjóðsögur landsins.
Þóra og Jóhann bregða á leik fyrir ungna sem aldna í þáttunum þar sem þau fjalla um þjóðsögur landsins.

Tvíeykið góða úr Stundinni okkar, þau Þóra Sigurðardóttir og Jóhann G. Jóhannsson, hafa nú gefið út DVD-diska sem innihalda þættina Sögurnar okkar. „Þetta eru þættir sem við gerðum fyrir RÚV og voru sýndir í fyrra,“ segir Þóra. „Þættirnir fjalla um þjóðsögur landsins og við fórum hringinn í kringum landið á sínum tíma. Við heimsóttum staðina þar sem þær eiga að hafa átt sér stað, brugðum okkur í alls kyns gervi og stúderuðum hversu raunhæfar sögurnar eru.“

Að sögn Þóru lögðu þau Jóhann áherslu á að efnið næði til allra aldurshópa og fengi jafnvel suma til að ferðast á slóðir sagnanna. „Ég veit að þættirnir fengu til dæmis marga til að fara á Skóga, þar sem Þrasi á að hafa hent gullinu sínu. Nú eru líka margar fjölskyldur komnar með DVD-spilara í bílana og því upplagt að leyfa krökkunum að horfa á þættina á ferðalögum. Þeir hafa gott fræðslugildi enda náðum við Jói að kynnast landinu betur við upptökur en við höfum nokkru sinni gert,“ segir Þóra og hlær. Þættirnir eru fáanlegir í öllum helstu plötu- og myndbandaverslunum landsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.