Fnykur 7. maí 2007 14:58
Þann 18. maí n.k kemur út hljómplatan Fnykur með Stórsveit Samúels Jóns Samúelssonar. Sama dag heldur Stórsveit Samúels útgáfutónleika á tónlistarhátíðinni Vorblóti "Rite of Spring" á Nasa sem fram fer á vegum Hr. Örlygs dagana 17.-19. maí. Tónlistin á plötunni er öll eftir Samúel en hann hlaut árið 2005 starfslaun listamanna til að semja tónlistardagskrá fyrir Stórsveit. Tónlistin var frumflutt af Stórsveit Reykjavíkur á tónleikum 1. febrúar 2006. Verharður Linnet sagði í dómi sínum um tónleikana í Morgunblaðinu 12. febrúar 2006 : "Stórsveitarfönk af bestu sort" "Segja má að Samúel Jón hafi komið, séð og sigrað er hann stjórnaði Stórsveit Reykjavíkur í tíu verkum sínum, nær öllum nýjum af nálinni… …vonandi verður tónlistin gefin út á geislaplötu." Draumur Vernharðs hefur nú ræst. Platan var hljóðrituð í hljóðverinu Heita Pottinum í mars og apríl af Gunnari Erni Tynes. Það er Sjs musik sem gefur plötuna út en henni er dreift af smekkleysu. Fnykur er að sögn Samúels það íslenska orð sem kemst næst enska orðinu "Funk" Samkvæmt Íslenskri orðabók þýðir orðið fnykur fýla, ódaunn eða vond lykt. Það samræmist enska orðinu "funk" sem upprunalega var notað yfir slæma lykt, einkum líkams lykt eða svitalykt samanber enska orðatiltakið "there´s something funky going on in here" sem gæti útlegst á ísllensku, "það er fnykur af þessu" í stóru orðabókinni eftir Hilmar Jón jónsson segir að orðið fnykur þýði vond lykt "-já þetta er ljóti fnykurinn" Stórsveit Samúels Jóns Samúelssonar skipa þeir: Haukur Gröndal - alto saxófónn Ingimar Andersen - alto saxófónn Jóel Pálsson - tenor saxófónn Steinar Sigurðarson - tenor saxófónn Óskar Guðjónsson - bariton saxofónn Kjartan Hákonarson - trompet Eiríkur Orri Ólafsson - trompet Snorri Sigurðarson - trompet Ari Bragi Kárason - trompet Samúel Jón Samúelsson - básúna Kári Hólmar Ragnarsson - básúna Finnur Ragnarsson - básúna Leifur Jónsson - básúna Davíð Þór Jónsson - Hljómborð Ómar Guðjónsson - gítar Ingi Skúlason - bassi Helgi Svavar Helgason - trommur Um SamúelSamúel var 14 ára er hann hóf leik í Léttsveit Tónmenntaskóla Reykjavíkur undir stjórn Sæbjörns Jónssonar. Árið 1991 hóf Samúel nám við Tónlistarskóla FíH og lék hann með stórsveit skólans til fjölda ára. Árið 2000 stofnaði Samúel eigin Stórsveit sem kom fram á útskritartónleikum hans. Sveitin lék eingöngu efni eftir Samúel. Það sama ár kom út hljómplatan Legoland og sveitin lék á Jazzhátíð Reykjavíkur. Síðan þá hefur Hljómsveitin legið í dvala. 2004 útsetti Samúel tónlist Tómasar R. Einarssonar fyrir tónleika á Listahátíð í Reykjavík. Um flutning sá hljómsveitin Jagúar í nk stórsveitarbúningi. Haustið 2004 voru tónleikarnir gefnir út á hljómplötunni "Dansaðu Fíflið Þitt Dansaðu!" . Platan fékk 3 verðlaun á Íslenku tónlistarverðlaununum. Samúel hefur starfað með Stórsveit Reykjavíkur bæði sem básúnuleikari, útsetjari og Stjórnandi. Haustið 2006 kom kom út hljómplatan "Majones Jól" með Stórsveit Reykjavíkur og Bogomil Font en Samúel útsetti meirihlutan plötunar ásamt því að stjórna sveitinni. Þá stjórnaði Samúel Stórsveit Reykjavíkur við afhendingu Íslensku Tónlistarverðlaunanna í janúar 2007 ásamt því að útsetja fyrir Stórsveitina.
Mest lesið María Thelma og Steinar Thors héldu brúðkaup ársins Lífið Fréttatía vikunnar: Pólitík, andlát og bíó Lífið Cheryl kvartar yfir fjölmiðlaumfjöllun um Liam Payne Lífið Faðir Payne las minningarorð og þakkaði aðdáendum Lífið „Hugleikið hver fær að stunda kynlíf og hver ekki“ Tónlist „Ég myndi aldrei fara í samband með einhverjum fávita“ Lífið Bar fyrir sig að hafa eitt sinn verið í strákabandi Lífið Haustförðunin sem hefur slegið í gegn á TikTok Lífið Þetta eru höfundar Áramótaskaupsins 2024 Lífið Rekinn af útgáfunni stuttu fyrir andlátið Lífið Fleiri fréttir „Hugleikið hver fær að stunda kynlíf og hver ekki“ „Þetta er saga af villigötum“ „Enginn að fara að hringja í mig að fyrra bragði“ Kemur frá Sýrlandi og syngur á íslensku Space Odyssey opnar á nýjum stað Dr. Gunni spyr hvort það sé ekki bara búið að vera gaman Afhjúpað á hvaða dögum böndin spila á Airwaves Reyna að eyða minningum um hvort annað í sturluðum dansi Frumsýning á Vísi: Rokkað á miðju gólfi komin sjö mánuði á leið „Þetta er sem betur fer ekki upp á líf og dauða“ Ævintýrin hófust þegar hann hafnaði Juilliard Enginn súr í sætu teiti í Ásmundarsal „Ég fæ morgnana til að vera bara ég“ Rokkþyrstir geta tekið gleði sína á ný Sigga Ózk verður Ariana Grande og flytur til Noregs Ávísun á eilíf vonbrigði að elta góða veðrið Frumsýning á Vísi: Landsliðsmaður gefur út lag með pabba sínum Taylor Swift jafnaði met Beyoncé á VMA Myndaveisla: Ofurfjör á Októberfest Sáu ekki fyrir sér vinsældirnar en fagna nú 36 árum Sergio Mendes höfundur Mas Que Nada látinn Gáfu tóndæmi af Barfly í beinni Aldrei séð annað eins: IceGuys seldi nítján þúsund miða Herra Hnetusmjör stoltur eftir tryllta afmælishelgi Samtalið órjúfanlegur hluti af sköpuninni Sjá meira