Erlent

Maður með heimþrá

Óli Tynes skrifar
Rauða torgið í Moskvu.
Rauða torgið í Moskvu.

Rússneskur maður stal tertu af konu á götu í Moskvu í gær. Hann bað hana svo að hringja í lögregluna og kæra verknaðinn.

Konan hringdi úr farsíma sínum og ræninginn beið hjá henni þartil laganna verðir komu á vettvang.

Ræninginn tjáði þeim að hann vildi fara aftur í fangelsi. Þegar pappírar hans voru skoðaðir kom í ljós að hann var nýbúinn að afplána 12 ára fangelsisdóm.

Og kökuræninginn fékk það sem hann vildi. Lögreglan lagði fram kærur á hendur honum sem fela í sér allt að þriggja ára fangelsi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×