Tónlist

Tilfinningarík tónlist

Hjörleifur Valsson fiðluleikari Leikur ásamt Antoníu Hevesi í Hafnarborg.
Hjörleifur Valsson fiðluleikari Leikur ásamt Antoníu Hevesi í Hafnarborg. MYND/E.ól

Hjörleifur Valsson fiðluleikari og Antonía Hevesi píanóleikari koma fram á hádegistónleikum í Hafnarborg á morgun. Yfirskrift tónleikanna er „Ljúflingslög“ en að sögn Antoníu verður leitast við að hafa andrúmsloftið rólegt og afslappandi og munu þau flytja íslensk sönglög í útsetningu Atla Heimis Sveinssonar tónskálds ásamt lögum eftir Vivaldi og Mozart.

Hjörleifur Valsson er mjög virkur í íslensku tónlistarlífi og kemur víða við sem fiðluleikari auk þess að kenna fiðluleik við Tónlistarskóla Hafnarfjarðar. Hann leikur á hljóðfæri smíðuð af Antonio Stradivari, Christophe Landon og Hans Jóhannssyni.

Hafnarborg, menningar- og listastofnun Hafnarfjarðar, hefur staðið fyrir tónleikum í hádegi einu sinni í mánuði og fer vel á því að hefja árið á ljúfu nótunum. Tónleikarnir standa yfir í um hálfa klukkustund og eru sérstaklega hugsaðir sem tækifæri fyrir fólk sem starfar í miðbæ Hafnarfjarðar til að njóta góðrar tónlistar í hádegishléi. Listrænn stjórnandi þeirra er Antonía Hevesi. Tónleikarnir eru í boði Hafnarborgar og öllum opnir meðan húsrúm leyfir og hefjast þeir kl. 12.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.