Ferðalangur lendir utan úr geimi 21. apríl 2007 23:33 Simonyi dreymdi um að komast út í geim frá 13 ára aldri. Nú er ferðalagið yfirstaðið.
Bandaríski milljarðarmæringurinn Charles Simonyi er kominn aftur til jarðar eftir tveggja vikna ferðalag út í geim. Ferðin kostaði hann 25 milljónir dollara, eða rúmlega einn og hálfan milljarð króna. "Sólin skýn og veðrið er gott," sagði Simonyi skælbrosandi eftir að hann lenti í geimfari í eyðimörkinni í Kazakstan. Eftir lendinguna beit hann í stórt, grænt epli sem Kasakstan er frægt fyrir, eins og hefð mælir fyrir um meðal rússneskra geimfara. Simonyi er ungverskur að uppruna. Þrettán ára vann hann keppni og fór til Moskvu til að hitta sovéskan geimfara. Hann varð ríkur á þátttöku sinni í að búa til tölvuforritin Word og Excel, sem finna má í stórum hluta einkatölva í heiminum. Tveir "alvöru" geimfarar komu aftur til jarðar með Simonyi, Bandaríkjamaður og Rússi. Ferðin frá alþjóðlegu geimstöðinni tók þrjár klukkustundir. Geimfararnir sem fóru með Simonyi í Soyuz fari út í geim 9. apríl verða í geimstöðinni næstu sex mánuði. Með þeim er Sunita Williams, bandarískur geimfari sem hefur verið í geimstöðinni síðan í desember. Meðal þeirra sem tóku á móti Simonyi var Martha Stewart, sem tók viðtal við hann fyrir sjónvarpsþátt sem hún heldur úti í Bandaríkjunum.
Vísindi Mest lesið Vaktin: Bílaplanið þakið hrauni Innlent Sigmundur hafi viljað í kennslustund með nemendum Innlent Bættu krakkpípu við styttu Nínu Sæmundsson í Los Angeles Erlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Gætu kosið strategískt þegar svo margir flokkar eru á mörkunum Innlent Hótaði heimilismönnum með skærum Innlent Telur Bláa lónið öruggt vegna varnargarðanna Innlent Endalok goshrinunnar teygist inn á mitt næsta ár Innlent „Þetta var bara besta stund kosningabaráttunnar til þessa“ Innlent Funda áfram hjá sáttasemjara á morgun Innlent Fleiri fréttir Segir notkun eldflaugarinnar fela í sér stigmögnun átaka Bættu krakkpípu við styttu Nínu Sæmundsson í Los Angeles Gaetz ætlar sér ekki að verða dómsmálaráðherra Tóku tíu úkraínska fanga af lífi Meina fyrstu trans þingkonunni að fara á kvennaklósettið Fyrsta nærmyndin af stjörnu utan Vetrarbrautarinnar Gefa út handtökuskipun á hendur Netanjahú Fjögur ungmenni nú látin af völdum tréspírans Skutu fyrstu langdrægu skotflauginni að Úkraínu Hugmynd um banana á vegg seldist á 850 milljónir John Prescott fallinn frá Siðanefndin klofin í máli Gaetz en gögn farin að leka Høiby í vikulangt gæsluvarðhald Fara fram á tveggja vikna gæsluvarðhald yfir stjúpsyninum NATO tryggi lykilinnviði eftir ætluð spellvirki í Eystrasalti Hlaut dauðadóm fyrir að eitra fyrir fjórtán vinum með blásýru Hótar að fella stjórnina í skugga „pólitísks dauðadóms“ Mafíuforingi sækist eftir þingsæti í Dyflinni Heitir peningaverðlaunum og lausn þeim sem frelsa gísla Fyrsta trans konan á þingi sætir aðför af hálfu kollega sinna Stofnandi World Wrestling Entertainment verður menntamálaráðherra Úkraínuforseti hvetur Vesturlönd til einbeittari stuðnings Ungar danskar konur taldar hafa látist af metanóleitrun Þúsund dagar af grimmd og eyðileggingu Börn Pelicot biðla til föður síns um að játa brot sín að fullu Stjúpsonur norska krónprinsins aftur handtekinn Hjálpargögnum stolið af tæplega hundrað flutningabifreiðum Tugur lýðræðissinna í Hong Kong dæmdur í fangelsi Segist ætla að siga hernum á farand- og flóttafólk Segir Biden „hella olíu á eldinn“ Sjá meira