Íslenski boltinn

Ísland niðurlægt á Laugardalsvelli

Eiríkur Stefán Ásgeirsson á Laugardalsvelli skrifar
Maris Verpakovskis og Girts Karlsons fagna þriðja marki Letta í leiknum. Eyjólfur Sverrisson stendur álengdar.
Maris Verpakovskis og Girts Karlsons fagna þriðja marki Letta í leiknum. Eyjólfur Sverrisson stendur álengdar. Mynd/Pjetur

Ísland - Lettland 2-4

1-0 Eiður Smári Guðjohnsen (4).

1-1 Oskars Klava (27.)

1-2 Jurijs Laizans (31.)

1-3 Maris Verpakovskis (37.)

1-4 Maris Verpakovskis (46.)

2-4 Eiður Smári Guðjohnsen (53.)

Tölfræði leiksins:

Skot (á mark): 14-16 (7-7)

Varin skot: Árni Gautur 2 - Vanins 5

Horn: 6-5

Aukaspyrnur fengnar: 9-15

Rangstöður: 2-0

Áminningar:

Lettland: Verpakovskis (22.)

Ísland: Kristján Örn (51.), Brynjar Björn (86.)

Skiptingar:

Ísland: Grétar Rafn út - Kári Árnason inn (25.)

Lettland: Karlsons út - Vits Rimkus inn (60.)

Ísland: Gunnar Heiðar út - Helgi Sigurðsson inn (65.)

Lettland: Verpakovskis út - Marians Pahars inn (78.)

Ísland: Kristján Örn út - Ármann Smári Björnsson inn (88.)

Lettland: Visnakovs út - Jurijs Ziagajevs inn (90.)

17.55 Leik lokið

Íslenska landsliðið er niðurlægt á eigin heimavelli. Úrslitin koma sem mikið reiðarslag fyrir liðið sem átti tvo góða leiki í síðasta mánuði. Lettar hafa alls skorað níu mörk í keppninni, átta gegn Íslandi en níunda markið var sjálfsmark andstæðingsins. Óhætt er að segja að enginn leikmaður íslenska landsliðsins hafi náð sér á strik.

17.47

Brynjar Björn fær margsinnis skotfæri í sömu sókninni en nær ekki að láta skotið ríða af. Skýtur þess í stað í markvörðinn þegar hann er búinn að klófesta boltann og uppsker gult spjald fyrir.

17.44

Lettar komast nálægt því að skora fimmta markið. Visnakovs á frábæran sprett upp hægri kantinn, leikur á íslenskan varnarmann en skot hans er hárfínt framhjá. Enn sex mínútur eftir af venjulegum leiktíma.

17.33

Eiður Smári á ágætt skot úr aukaspyrnu en ekki mikið meira hefur gerst síðustu mínúturnar. Leikurinn er orðinn frekar lágstemmdur miðað við áður.

17.25

Íslenska liðið reynir að sækja en gengur afar illa. Misheppnaðar sendingar og misskilningur er heldur algengt þessar mínúturnar. Nú er Helgi Sigurðsson kominn inn á og kannski að hann fríski upp á leikinn.

17.16

Lífsmark hjá íslenska liðinu. Jói Kalli á gott skot að marki sem er varið í horn. Hætta skapast aftur við lettneska markið eftir hornið en ekki fer boltinn inn.

17.14 Ísland-Lettland 2-4

Jæja, Eiður klórar í bakkann fyrir Ísland. Hann fékk boltann í teignum, sneri af sér einn mann og skaut laglegu skoti í fjærhornið. Laglegt mark og hans nítjánda landsliðsmark á ferlinum.

17.07 Ísland-Lettland 1-4

Nítján sekúndur. Lettar skora sitt fjórða mark í leiknum þegar nítján sekúndur eru liðnar af síðari hálfleik. Boltinn barst inn á teig, Karlsons vann skallaeinvígi og kom boltanum fyrir Verpakovskis sem náði að koma boltanum í netið.

16.50 Hálfleikur

Sorglegum fyrri hálfleik lokið. Ísland byrjaði vel en fylgdi því ekki eftir. Óheppni og lélegur varnarleikur varð til þess að Lettar skoruðu þrjú mörk á tíu mínútna kafla. Þetta eru þeirra fyrstu mörk á útivelli í allri undankeppninni. Einnig skal tekið fram að sjö af átta mörkum Letta í riðlinum til þessa hafa komið í leikjum gegn Íslandi. Áttunda markið var sjálfsmark andstæðingsins.

16.48

Eitthvað smá lífsmark á íslenska liðinu. Brynjar Björn á gott skot að marki sem markvörður Letta ver í horn. Ekkert kemur úr því.

16.40 Ísland-Lettland 1-3

Jæja, það er bara svona. Verpakovskis fær boltann eftir hornspyrnu, snýr sér í teignum og kemur boltanum í netið. Óheyrilega slakur varnarleikur sem er að verða íslenska landsliðinu að falli. Hrein martröð á Laugardalsvellinum.

16.38 Athyglisverð staðreynd

Þessi mörk Letta í dag eru þau fyrstu sem liðið skorar á útivelli í allri undankeppninni. Lettar töpuðu meira að segja fyrir Liechtenstein á útivelli, 1-0. Það er ekki góðs viti fyrir næstu viðureign Íslands, gegn Liechtenstein á útivelli.

16.34 Ísland-Lettland 1-2

Hvað er að gerast? Kristján Örn brýtur á Verpakovkis og Jurijs Laizans skorar úr aukaspyrnunni. Skotið kom yfir vegginn og í nærhornið frá vinstri vítateigshorninu. Árni Gautur átti að gera betur þarna. Þetta var fyrsta mark Laizans með landsliði Lettlands í hans 86. leik.

16.30 Ísland-Lettland 1-1

Þvílíkur varnarleikur! Oskars Klava jafnar metin fyrir Letta með skalla eftir hornspyrnu. Hann fékk að standa á besta stað í teignum án þess að nokkur íslenskur leikmaður sinnti honum. Ótrúlega klaufalegt. Sanngjarnt þó því Lettarnir hafa bitið frá sér eftir íslenska markið.

16.27

Jóhannes Karl á gott skot úr aukaspyrnu sem markvörður Letta ver í horn. Úr því á Kristján Örn hættulegan skalla að marki en framhjá.

16.26 Skipting

Grétar Rafn þarf að fara af velli vegna meiðsla. Kaspars Gorkss tæklaði Grétar með þeim afleiðingum að Grétar varð draghaltur.

16.17 Úff!

Þvílíkt dauðafæri! Lettar eiga góða sókn og Visnakovs fær boltann í teignum og er einn gegn Árna Gauti. Hann ver vel frá honum en boltinn berst fyrir fætur Verpakovkis sem er með autt markið fyrir framan sig. Á einhvern ótrúlegan hátt nær maðurinn að setja boltann í stöng og út af.

16.16

Maris Verpakovkis, hættiulegasti maður Letta, á eitraðan skalla að marki sem Árni Gautur ver vel í horn. Það er greinilegt að Lettarnir hafa ekki látið mark Íslands slá sig út af laginu.

16.08 Markametið slegið!

Þetta var átjánda mark Eiðs Smára með landsliðinu og er hann nú orðinn markahæsti leikmaður íslenska landsliðsins frá upphafi.

16.07 Ísland-Lettland 1-0

Ísland á glæsilega sókn sem skilar sér í marki! Emil á góðan sprett upp miðjuna, gefur á Hjálmar sem kemur hlaupandi upp vinstri kantinn. Hann leggur hann fyrir Eið Smára sem skorar örugglega af stuttu færi.

16.05

Leikurinn hafinn og Lettar ná skoti í sinni fyrstu sókn. Þar var þó engin hætta á ferð. Íslenska liðið virðist mæta ágætlega stemmt til leiks.

15.55

Velkomin til leiks hér á Vísi. Athyglisverður landsleikur framundan við Lettland í undankeppni EM 2008. Hvorugt liðið á möguleika á að komast áfram í úrslitakeppnina en hvert stig og hvert mark skiptir máli, ekki síst upp á stoltið.

Byrjunarliðin í dag:

Ísland (4-4-2): Árni Gautur Arason; Kristján Örn Sigurðsson, Ívar Ingimarsson, Ragnar Sigurðsson, Hjálmar Jónsson; Grétar Rafn Steinsson, Jóhannes Karl Guðjónsson, Brynjar Björn Gunnarsson, Emil Hallfreðsson; Eiður Smári Guðjohnsen, Gunnar Heiðar Þorvaldsson.

Lettland: Andris Vanins; Vitalis Astafjevs, Dzintars Zirnis, Jurijs Laizans, Deniss Ivanovs, Maris Verpakovskis, Kaspars Gorkss, Genadijs Solonicins, Aleksejs Visnakovs, Oskars Klava, Girts Karlsons.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×