Bíó og sjónvarp

Vesturport stærst

Gísli Örn Garðarsson
Gísli Örn Garðarsson

Af sjálfstæðum hópum verður leikhópurinn Vesturport fyrirferðarmestur, bæði með sýningar á eigin vegum og í samstarfi við stærri leikhús: LR, LA og Þjóðleikhúsið.

Hópurinn státar af tveimur leikstjórum, Gísla Erni Garðarssyni og Birni Hlyn Haraldssyni. Frá fyrra leikári taka þau upp þráðinn með sýningum á Ást á Nýja sviði Borgarleikhússins og og sýna Hamskiptin eftir sögu Kafka í september á Stóra sviði Þjóðleikhússins en verkið var frumsýnt í London í fyrra og er nú enduræft með íslenskum kröftum í öllum hlutverkum.

Mikið er búið að fjalla um alþjóðlega sýningu sem byggir á kvikmynd Lukas Moodysson, Tillsammans. Ekki er ljóst hvar hún kemur upp í desember, en verkinu er ætlað að fara víða með sinn alþjóðlega leikhóp. Í desember verður Superstar sett upp í samvinnu við LR í leikstjórn Björns Hlyns en þaðan fer hann norður á Akureyri og setur á svið eigið verk, Double Dusch, í samstarfi við LA.

Stóru tíðindin eru sviðsetning á Faust, sú þriðja hér á landi, en Kurt Zier setti verk Faust upp með brúðum á stríðsráunum og Þjóðleikhúsið flutti verkið 1971. Að þessu sinni er frumsagan sótt í þjóðsögur en ekki verk Goethe, en með Gísla leikstjóra koma að verkinu Nick Cave og Carlo Grosse. Frumsýning verður í Borgarleikhúsi næsta vor. Umsvif Vesturports hafa aldrei verið meiri, en hópurinn nýtur styrks frá Leiklistarráði. Hann stefnir einnig að framleiðslu á kvikmyndinni Brim eftir samnefndu leikverki Jóns Atla Jónssonar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.