Erlent

Berdymukhamedov sigurstranglegastur

Túrkmenar ganga að kjörborðinu í dag og kjósa sér nýjan forseta. Hann fær það erfiða verkefni að taka við arfleið hins nýlátna Saparmurat Niyazov, betur þekktur sem Turkmenbashi eða faðir allra Túrkmena. Fastlega búist við að Gurbanguly Berdymukhamedov, bráðabirgðaforseti landsins, muni bera sigur úr býtum en auk hans eru fimm karlar í kjöri. Þeir eru allir félagar í sama stjórnmálaflokknum, sem er raunar sá eini sem heimilaður er í þessu lokaða landi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×