Kirkjan í Zimbabwe varar stjórnvöld við 9. apríl 2007 10:29 Í Zimbabwe er verðbólga um 1.700 prósent og atvinnuleysi um 80 prósent. MYND/AFP
Biskupar rómversk-kaþólsku kirkjunnar í Zimbabwe vöruðu við því að ef ekki yrðu haldnar frjálsar kosningar myndi almenningur rísa upp á afturlappirnar og bylting yrði raunin. Þetta var fullyrt í bréfi sem hengt var upp í kirkjum víðs vegar um landið í gær. Einstakir biskupar hafa áður gagnrýnt Robert Mugabe, forseta landsins, en þetta er í fyrsta sinn sem að liðsmenn kirkjunnar taka höndum saman til þess að gagnrýna stjórnvöld. Í bréfinu var einnig lagt til að landsmenn myndu allir biðja þann 14. apríl næstkomandi. Benedikt páfi minntist á ástandið í Zimbabwe í páskaræðu sinni. Þar sagðist hann harma átökin sem hafa átt sér stað í landinu undanfarið og sagðist vonast til þess að deiluaðilar myndu ná sáttum fljótlega. Í bréfinu sem hengt var upp í kirkjum í Zimbabwe var þolraun íbúa landsins borin saman við kúgun gyðinga á tímum faraóana í Egyptalandi. Kaþólska er útbreiddasta trúin í Zimbabwe og því er ljóst að biskuparnir hafa töluverð áhrif á gang mála í landinu.
Erlent Mest lesið „Sorglegt að sjá hversu gaman þetta var fyrir þá“ Innlent Kafað eftir reiðhjóli í Reykjavíkurhöfn Innlent Flestir starfsmenn USAid sendir í leyfi og 2.000 störf lögð niður Erlent Kristrún og fleiri leiðtogar mæta til Kænugarðs Innlent Kynnti tveggja milljarða viðbótarstuðning við Úkraínu í Kænugarði Innlent Hefur áhyggjur af mikilli notkun melatóníns hjá börnum Innlent Grét þegar hún kom á Ásbrú og hélt að lífið væri búið Innlent Íhaldsmenn sigruðu en öfgahægrið náði sögulegum árangri Erlent Jón undir feldi eins og Diljá Innlent Sendu skriðdreka inn á Vesturbakkann í fyrsta sinn í 23 ár Erlent Fleiri fréttir Væntanlegur kanslari segir Evrópu þurfa sjálfstæði frá Bandaríkjunum Formaður sænska Miðflokksins hættir Íhaldsmenn sigruðu en öfgahægrið náði sögulegum árangri Flestir starfsmenn USAid sendir í leyfi og 2.000 störf lögð niður Sendu skriðdreka inn á Vesturbakkann í fyrsta sinn í 23 ár Útgönguspár benda til sögulegra úrslita Tilbúinn að stíga til hliðar Páfinn sendir frá sér yfirlýsingu Þjóðverjar ganga að kjörborðinu: „Vinstrið er búið“ Hamas reiðubúin að láta af stjórn Gaza Segir Selenskí hugrakkan leiðtoga Kona sem sagðist vera Madeleine McCann handtekin Aftökur á stríðsföngum sagðar kerfisbundnar Þjóðverjar ganga til kosninga um helgina Farnir að safna matvælum vegna fyrirhugaðra tollahækkana Alríkisdómari neitar að stöðva fjöldauppsagnir Afhentu óþekkt lík í stað Shiri Bibas Dómari skaut eiginkonu sína vegna rifrildis Bandaríkjastjórn neitar að kalla Rússa „árásaraðila“ Trump fetar í fótspor Breivik Afhentu lík yngstu gíslanna sem teknir voru frá Ísrael Trump geti „algerlega“ fellt mál niður af pólitískum ástæðum Ætlar í stórfelldan niðurskurð hjá hernum Trump segir Rússa hafa öll spil á hendi Trump titlar sig konung Danir ausa milljörðum í varnarmál Kallar Selenskí einræðisherra og varpar fram lygum Ákærð fyrir að bana barni fyrir hálfri öld Biður Trump-liða um að virða sannleikann Vildi eitra fyrir forsetanum og skjóta forseta hæstaréttar Sjá meira