Innlent

Vilja lögbinda jafnt hlutfall kvenna

Landsfundur Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs stendur yfir á Grand Hótel Reykjavík. Í dag fer fram málefnastarf en meðal þess sem finna má í drögum að samþykktum landsfundarins eru rótttækar aðgerðir í jafnfréttismálum þar sem lagt er til að bundið verði í stjórnarskrá jafnt hlutfall kvenna og karla á Alþingi og í sveitarstjórnum.

Jafnframt er lagt til að lögbinda jafnt hlutfall kvenna og karla í stjórnum fyrirtækja. Tillögurnar gera enn fremur ráð fyrir að launaleynd verði afnumin. Í dag verður einnig kosinn formaður flokksins, varaformaður, gjaldkeri, ritari og aðrir stjórnarmenn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×