Bíó og sjónvarp

Coppola sýnir í Róm

Coppola með dótturinni Sophia.
Coppola með dótturinni Sophia.

Fyrsta kvikmynd leikstjórans Francis Ford Coppola í tíu ár verður frumsýnd á kvikmyndahátíðinni í Róm í október. Myndin nefnist Yout Without Youth og gerist í seinni heimsstyrjöldinni. Með aðalhlutverk fer Tim Roth. Leikur hann prófessor sem verður að skotmarki nasista eftir að hann kemst yfir formúlu fyrir ódauðleika.

„Þessi kvikmynd ber vott um nýtt tímabil á mínum ferli þar sem ég ætla aðeins að búa til persónulegar myndir,“ sagði Coppola.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×