Erlent

Fer holu í höggi

Bandaríski skrautpáfagaukurinn Al hefur að undanförnu leikið listir sínar fyrir sjónvarpsáhorfendur í Flórída. Gauksi er fjölhæfur í meira lagi því á meðal íþróttagreina sem hann hefur lagt fyrir sig eru körfubolti, fimleikar og meira að segja golf. Eftir margra mánaða þrotlausar æfingar fer hann nú holu í höggi nánast í hvert einasta sinn sem hann bregður kylfunni í gogginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×