Erlent

Peron framseld til Argentínu

Isabel Peron á valdatíma sínum.
Isabel Peron á valdatíma sínum. MYND/AP

Isabel Peron var í dag framseld yfirvöldum í Argentínu vegna gruns um að hún hafi fyrirskipað fjölmörg morð og mannrán á valdatíma sínum sem forseti Argentínu. Hún tók við embætti á forseta áttunda áratug síðustu aldar eftir að eiginmaður hennar, Juan Peron, þáverandi forseti Argentínu, lést.

Isabel giftist Peron nokkrum árum eftir að hin goðsagnakennda eiginkona hans Eva Peron lést. Isabel, sem er 75 ára, hefur búið á Spáni síðan henni var komið frá völdum í valdaráni hersins árið 1976. Mannréttindahópar segja að hún beri ábyrgð á þeirri óöld og þeim þjáningum sem leiddu til valdaránsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×