Bíó og sjónvarp

Hairspray - Fjórar stjörnur

Það hefur sjálfsagt verið óskemmtilegt að alast upp í Baltimore í upphafi sjöunda áratugarins, þar sem meðalmennska, fordómar og afturhaldssemi réðu ríkjum, eins og gefið er til kynna í dans- og söngvamyndinni Hairspray.

Þar segir frá Tracy Turnblad, þybbinni unglingsstúlku, sem fær ósk sína uppfyllta þegar hún kemst í Corny Collins-sjónvarpsþáttinn, þrátt fyrir að falla illa að stöðluðum fegurðarímyndum. Tracy uppgötvar sér til mikillar skelfingar hversu illa er farið með svarta í þáttunum og í bænum almennt og setur allt á annan endann með því að hefja réttindabaráttu svartra.

Hairspray er endurgerð samnefndrar kvikmyndar Johns Waters frá árinu 1988, sú fyrsta sem kvikmyndagerðarmaðurinn sendi frá sér sem átti upp á pallborðið hjá bandaríska kvikmyndaeftirlitinu og aflaði honum almennra vinsælda.

Tónlist sjöunda áratugarins var eitt aðalsmerki kvikmyndarinnar og því í raun tímaspursmál hvenær einhverjum snillingnum dytti í hug að gera upp úr henni söngleik. Sú varð raunin þegar Hairspray var sett upp á Broadway árið 2002 og valinn „Söngleikur ársins“.

Hollywood var ekki lengi að finna peningalyktina og á síðasta ári var söngleikurinn kvikmyndaður. Margir efuðust um að Adam Shankman, með sína afleitu ferilskrá, gæti fetað í fótspor Waters og hvað þá að John Travolta væri verðugur arftaki Divine sem móðir Tracy

Óttinn reynist algjörlega óþarfur, því jafn vel heppnuð og skemmtileg dans- og söngvamynd hefur ekki sést lengi. Vissulega hefði mátt koma ádeilunni á aðskilnaðarstefnuna betur til skila en Shankman kýs að keyra myndina áfram með fjörugum tónlistaratriðum og leikhópurinnn stendur sig með sóma. Blonsky er frábær sem Tracy, Walken mátulega góður sem faðir hennar og Pfeiffer dá­samlega illkvittin sem þáttastjórnandinn Velma Von Tussle. Travolta tekst ágætlega upp sem kona þótt það vanti aðeins upp á raddbeitinguna.

Hairspray er fyrirtaks fjölskylduskemmtun sem stenst forveranum fyllilega snúning, ásamt því að kenna okkur að koma auga á og meta fegurðina í margbreytileikanum.

Roald Viðar Eyvindsson






Fleiri fréttir

Sjá meira


×