Innlent

Auglýsingin fór gegn skilyrðum laganna

Björn Bjarnason segir það augljóst mál að aðstoðarríkislögreglustjórinn þurfi lögfræðimenntun.
Björn Bjarnason segir það augljóst mál að aðstoðarríkislögreglustjórinn þurfi lögfræðimenntun. MYND/GVA

Dómsmál Dómsmálaráðuneytið auglýsti ólöglega eftir umsóknum um embætti aðstoðarríkislögreglustjóra. Auglýst var eftir „starfsmanni með embættispróf í lögfræði, reynslu af störfum innan réttar- og refsivörslukerfisins og þekkingu á starfsmannamálum lögreglunnar".

Í lögreglulögum kemur fram að allir þeir sem hafi „lokið námi frá Lögregluskóla ríkisins svo og stjórnunarnámi eða öðru sambærilegu námi" geti gegnt stöðu aðstoðarríkislögreglustjóra.

Sigurður Líndal, fyrrverandi lagaprófessor, segir auglýsinguna ekki hafa uppfyllt skilyrði samkvæmt lögum. „Í auglýsingunni hefði átt að taka fram öll skilyrðin sem fram koma í lögunum. Hafi það ekki verið gert, eins og útlit er fyrir, er auglýsingin ekki í samræmi við lög."



Páll Winkel eini maðurinn sem sótti um stöðu aðstoðarríkislögreglustjóra. MYND/Anton

Auglýsingin birtist aðeins í vefútgáfu Lögbirtingablaðsins. Blaðið kom út á pappírsformi sama dag og umsóknarfresturinn rann út. Páll Winkel, nýskipaður yfirmaður stjórnsýslusviðs hjá ríkislögreglustjóra, var sá eini sem sótti um starfið. Páll er sonur Guðnýjar Jónsdóttur, ritara Björns Bjarnasonar í dómsmálaráðuneytinu. Björn þvertók fyrir að Páll fengi fyrirgreiðslu af einhverju tagi vegna þeirra tengsla.

Björn segir það blasa við að umsækjandinn þurfi að hafa lögfræðimenntun til þess að geta gegnt fyrrnefndu starfi. „Væru verkefnin þess eðlis að þau féllu að manni með lögreglumenntun eða reynslu hefði verið óskað eftir manni með þá menntun."

 

Dómsmálaráðuneytið auglýsti eftir lögfræðimenntuðum manni í starf aðstoðarríkislögreglustjóra en samkvæmt nýlega breyttum lögum geta lögreglumenn einnig sótt um starfið.MYND/Anton

Auglýst starf er annað tveggja embætta aðstoðarríkislögreglustjóra en Sigríður Björk Guðjónsdóttir gegnir hinu. Björn svaraði ekki skýrt spurningum sem beint var til hans, um hvort auglýsingin samræmdist lögfestum skilyrðum í lögum.

Steinar Adolfsson, framkvæmdastjóri Landssambands lögreglumanna, segir það vera skýrt í lögunum að lögreglumenn eigi þess kost að sækjast eftir og gegna embætti aðstoðarríkislögreglustjóra. „Samkvæmt lögunum, og nýlegum breytingum sem hafa komið til framkvæmda, er það alveg skýrt að lögreglumenn geta gegnt stöðu aðstoðarríkislögreglustjóra, líkt og stöðu aðstoðarlögreglustjóra. Að því leytinu til snertir þetta lögreglustéttina í heild."

Landssambandið ætlar að skoða málið enn frekar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×