Lífið

Stallone í haldi vegna "misskilnings"

Stallone stillir sér upp fyrir ljósmyndara fyrir frumsýningu Rocky Balboa í London í síðasta mánuði.
Stallone stillir sér upp fyrir ljósmyndara fyrir frumsýningu Rocky Balboa í London í síðasta mánuði. MYND/AP

Bandaríska kvikmyndaleikaranum Sylvester Stallone var haldið klukkutímum saman á flugvellinum í Sydney í Ástralíu í gærkvöldi. Flugvallaryfirvöld sögðu tollverði hafa fundið efni í fórum leikarans og fylgdarliði hans sem bannað væri að flytja til landsins.

"Þetta var bara misskilningur," sagði Stallone við fréttamenn í Sydney í dag þegar hann mætti til frumsýningar nýjustu myndar sinnar Rocky Balboa.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×