Lífið

Britney rakar sig sköllótta

Britney á húðflúrstofunni.
Britney á húðflúrstofunni. MYND/AP

Britney Spears mætti sköllótt á húflúrstofu í San Fernando Valley í Los Angeles. Á myndbandi KABC-TV stöðvarinnar sést söngkonan koma á húðflúrstofuna nauðasköllótt.

Á fréttavef CNN segir að aðdáendum hennar líki nýi stíllin misilla. Einn þeirra sagði: "Þetta er hræðilegt." Söngkonan mun hafa rakað sig sjálf. Á húðflúrstofunni fékk sér lítið húðflúr á úlnliðinn; rauðar og bleikar varir.

Fréttum í fjölmiðlum ber ekki saman um áfengismeðferð stjörnunnar. Sagt er að hún hafi farið í meðferð, en hafi horfið þaðan samdægurs.

Hún hefur verið gagnrýnd harðlega í fjölmiðlum nýverið fyrir partýstand og subbulega framkomu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.