Innlent

Valt 50 metra en enginn slasaðist

Mildi þykir að ekki fór verr en raunin varð þegar jeppi með fjögurra manna fjölskyldu valt 50 metra út af veginum í Önundarfirði í gærkvöldi og gjöreyðilagðist. Fólkið, sem var allt í öryggisbeltum, var flutt á sjúkrahúsið á Ísafiðri til aðhlynningar og skoðunar, en engin reyndist alvarlega slasaður.

Slysið varð með þeim hætti að ökumaðurinn missti bílinn út af bundna slitlaginu, en þegar hann reyndi að sveigja aftur upp á veginn, kom slinkur á jeppann og hann valt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×