Erlent

Ítalski boltinn hefst að nýju um helgina

Frá fréttamannafundi sem var haldinn í dag eftir að stjórnvöld samþykktu hertar aðgerðir gegn fótboltabullum.
Frá fréttamannafundi sem var haldinn í dag eftir að stjórnvöld samþykktu hertar aðgerðir gegn fótboltabullum. MYND/AP

Knattspyrnusamband Ítalíu sagði frá því í dag að knattspyrnuleikir myndu hefjast að nýju um næstu helgi. Stjórnvöld á Ítalíu samþykktu í dag hertar öryggisráðstafanir til þess að reyna að koma í veg fyrir óeirðir á knattspyrnuleikjum.

Enginn fótboltaleikur hefur farið fram á Ítalíu síðan á föstudaginn síðastliðinn. Þá lést ungur lögreglumaður í átökum áhangenda tveggja liða, Palermo og Catania.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×