Körfubolti

Magic: Kobe fer ekki til Chicago

NordicPhotos/GettyImages

Magic Johnson, varaforseti LA Lakers í NBA deildinni, segir að ekkert geti orðið af því að Kobe Bryant fari til Chicago Bulls eins og fjallað hefur verið um í fjölmiðlum síðustu vikurnar.

"Við getum ekki samið um þessi fyrirhuguðu skipti því Chicago vill ekki missa Luol Deng. Og án hans - verður ekkert af þessu," sagði Magic í samtali við Chicago Sun-Times. Hann lét hinsvegar í það skína að Lakers væri aftur farið að íhuga að næla í Jermaine O´Neal, leikmann Indiana Pacers.

Nokkuð hefur líka verið slúðrað um að Lakers hafi verið í viðræðum við Phoenix Suns um þriggja liða skipti þar sem Chicago kæmi inn í pakkann, en forráðamenn Phoenix hafa skotið þau tíðindi niður.

Bryant skoraði 45 stig í nótt þegar lið hans tapaði fyrir Houston í opnunarleik sínum í deildarkeppninni, en ljóst er að orðrómar um för hans frá Lakers eru ekkert að þagna þó leiktíðin sé hafin.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×