Innlent

Nekt og axir hjá löggunni

Lögregla höfuðborgarsvæðisins fær margvísleg verkefni, þeirra á meðal var hún kölluð til til að gá að hálfþrítugum sem sagt var að gengi um klæðalítill í miðbæ Reykjavíkur.  Þegar að var komið reyndist maðurinn kviknakinn og í annarlegu ástandi. Þá gerði lögreglan upptækar þrjár axir í bíl ungs manns í gær.

17 ára ökumaðurinn var stöðvaður við hefðbundið umferðareftirlit í Breiðholti. Í bíl hans fundust þrjár axir sem ökumaðurinn átti erfitt með að gera grein fyrir og voru þær því haldlagðar.

Eftirlit var haft með útvistartíma barna og unglinga í gærkvöld. Flestir virða útivistarreglur en þó ekki allir. Lögreglumenn höfðu afskipti af níu ára stúlku sem var í söluturni í Kópavogi um tíuleytið. Aðspurð sagðist hún hafa verið send út í sjoppu af móður sinni. Samkvæmt útivistarreglum má þessi stúlka ekki vera á almannafæri eftir klukkan 20:00 nema í fylgd með fullorðnum. Henni var ekið til síns heima en móðir hennar lofaði því að þetta myndi ekki endurtaka sig. Þá var bíll stöðvaður í Kópavogi um hálfþrjúleytið í nótt en á meðal farþega var 14 ára stúlka. Hún átti að vera löngu komin í háttinn og gat gefið lítt haldbærar skýringar á þessari útivist. Haft var samband við foreldra hennar en þeir óskuðu þess að hún kæmi heim til sín hið fyrsta og lögreglan varð að sjálfsögðu við því.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×