Erlent

Haldið og pyntuð í níu daga

Óli Tynes skrifar
Frá Kaupmannahöfn.
Frá Kaupmannahöfn.

Nítján ára gamalli danskri stúlku var haldið fanginni í skúr við suðurhöfnina í Kaupmannahöfn í níu daga, þar sem hún var brennd, barin og misþyrmt á margvíslegan hátt.

Kærasti hennar hefur verið handtekinn vegna málsins. Stúlkan var lögð inn á sjúkrahús enda var hún bæði máttfarin af næringarskorti og svo slösuð að talsmaður lögreglunnar sagði að hann hefði sjaldan séð annað eins.

Að sögn stúlkunnar hóf kærastinn ofbeldið gegn henni fyrir ári. Það versnaði svo stöðugt og hann hótaði að myrða fjölskyldu hennar ef hún segði frá því.

Í gær tókst henni að komast út úr skúrnum og inn á áfast trésmíðaverkstæði. Þaðan hringdi hún í fjölskyldu sína sem hafði þegar samband við lögregluna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×