Lífið

James Brown loks jarðaður

Börn söngvarans James Browns og ekkjan Tomi Rae Hynie, hafa loksins komist að samkomulagi um hvar á að jarðsetja líkama hans. Ósamkomulag og ósætti hefur verið meðal aðilanna um erfðir og skiptingu eigna. James Brown lest á jóladag, 73 ára að aldri. Líkið er geymt í gullkistu á útfararstofu sem mun sjá um jarðaförina. Haft er eftir lögmanni konunnar á fréttavef CNN að staðsetningunni verði haldið leyndri að ósk barna Browns sem eru sex talsins. Jarðaförin fer fram á næstu dögum.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.