Erlent

Neyðarlög í Pakistan

Guðjón Helgason skrifar

Neyðarástandi var lýst yfir í Pakistan í dag. Musharraf forseti tók sér alræðisvald og skipti um forseta hæstréttar. Dómstóllinn á enn eftir að úrskurða um kjörgengi Musharrafs í síðustu kosningum.

Benasír Búttó, fyrrverandi forsætisráðherra Pakistans, fór til Dúbaí í persónulegum erindagjörðum á fimmtudaginn, hálfum mánuði eftir að hún sneri heim úr átta ára sjálfskipaðri útlegð. Hún var hrædd um að Pervez Musharraf, forseti, setti neyðarlög meðan hún væri í burtu og sú varð raunin.

Tilkynnt var í dag að hann hefði lýst yfir neyðarástandi og tekið sér alræðisvald. Þrátt fyrir það starfa ríkisstjórn og þing áfram. Tíðar árásir herskárra múslima og afskitpi dómsvaldsins af framkvæmdavaldinu eru ástæður aðgerðanna.

Hæstiréttur á eftir að skera úr um kjörgengi Musharraffs í forsetakosningum á þingi í síðasta mánuði. Tekist var á um hvort hann gæti boðið sig fram og haldið áfram að gegna embætti hæstráðanda hjá pakistanska hernum. Þrír dagar eru þar til kjörtímabili hans ljúki og nýtt tekur við og því stutt í úrskurð dómara.

Hæstiréttur mun hafa neitað að samþykkja neyðarlög og var forseti hæstaréttar þá umsvifalaust rekinn og nýr skipaður í hans stað. Herinn umkringdi allar sjónvarps- og útvarpsstöðvar í landinu og slökkti á þeim einkareknu. Símasambandslaust er við stærstu borgir landsins. Margir voru handteknir.

Stjórnmálaskýrendur segja forvitinlegt að sjá hvernig Búttó bregðist við þessu. Hún hafi snúið aftur í samvinnu við Musharraf en um leið boðað breytingar. Nú verði hún að ákveða hvort hún ætli að styðja forsetann eða taka sér stöðu með stjórnarandstöðunni og berjast gegn honum.

Nú er óvíst hvort kosið verði til þings í janúar eins og áætlað var. Buttó ætlaði sér þá forsætisráðherraembættið.

Búttó sneri aftur til Karachi í Pakistan eftir að fréttir bárust af sviptingum dagsins. Skothríð heyrðist í úthverfum borgarinnar og óttast margir að uppúr sjóði með ófyrirséðum afleiðingum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×