Erlent

Tuttugu látnir eftir fangauppreisn

Lögregla yfirbugar einn fanganna.
Lögregla yfirbugar einn fanganna. MYND/AP

Tuttugu fangar létu lífið í miklum óeirðum í fangelsi í El Salvador í gær. Átökin hófust þegar nokkrir félagar í einni af klíkum fangelsins réðust á fangavörð og síðan á aðra fanga.

Var svo barist með hnúum og hnefum en einnig vopnum sem föngunum hafði tekist að komast yfir. Áflogin voru svo heiftarleg að veggir brotnuðu og þegar yfir lauk lágu tuttugu í valnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×