Viðskipti innlent

Færeyingar efstir og neðstir í Kauphöllinni

Fjárfestar bíða í ofvæni eftir því hvort Ben Bernanke og stjórn seðlabanka Bandaríkjanna ákveði að lækka stýrivexti vestanhafs síðar í dag.
Fjárfestar bíða í ofvæni eftir því hvort Ben Bernanke og stjórn seðlabanka Bandaríkjanna ákveði að lækka stýrivexti vestanhafs síðar í dag. Mynd/AFP

Gengi hlutabréfa hækkaði almennt við lokun Kauphallarinnar í dag. Þetta er í takti við þróun á alþjóðlegum hlutabréfamörkuðum en fjárfestar þykja stíga varlega til jarðar áður en greint verður frá því hvort breytingar verði gerðar á stýrivaxtastigi í Bandaríkjunum um fimmleytið. Gengi bréfa í færeyska olíuleitarfélaginu Atlantic Petroleum hækkaði langmest, eða um rúm fjögur prósent. Gengi landa Færeyinganna í Föroya banka lækkaði á móti mest, eða um 3,23 prósent.

Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,75 prósent og stendur hún í 7.641 stigum. Árshækkun hennar nemur 19,19 prósentum.

Vísitölur hafa að sama skapi hækkað á meginlandi Evrópu í dag. FTSE-vísitalan í Bretlandi hækkaði um heil 1,75 prósent, Dax-vísitalan í Þýskalandi hækkaði um 1,29 prósent og hin franska Cac-40 vísitalan hækkaði um 1,96 prósent.

Þá hefur gengi hlutabréfa sömuleiðis hækkað nokkuð á hlutabréfamörkuðum í Bandaríkjunum í dag eftir taugatitring upp á síðkastið en flestar vísitölur vestanhafs hafa hækkað um tæpt eitt prósent.

Bankastjórn seðlabanka Bandaríkjanna greinir frá vaxtaákvörðun sinni um fimmleytið í dag. Fjárfestar eru þó ekki á einu máli um næstu skref stjórnarinnar. Almennt er gert ráð fyrir því að bankinn lækki stýrivexti um 25 punkta vegna óróleika á fjármálamörkuðum í kjölfar mikillar vanskilaaukningar á bandarískum fasteignalánamarkaði frá vordögum. Aðrir telja bankann þó geta lækkað vextina um allt að 50 punkta. Svo eru enn aðrir, sem telja að bankinn muni halda vöxtunum óbreyttum að sinni enda hafi Ben Bernanke, seðlabankastjóri, margoft sagt að vextir verði ekki lækkaðir fyrr en vísbendingar komi í ljós að verðbólga sé að hjaðna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×