Tuttugu og fimm ára rútuferð 6. febrúar 2007 16:25 Í stað þess að koma í litla þorpið sitt lenti Jaeyaena í Bangkok. MYND/Úr einkasafni
Jaeyaena Beuraheng er múslimi af malaiskum uppruna sem hvorki kann að tala eða skrifa taílensku. Hún bjó í einu af þrem múslimahéruðum syðst í Thaílandi, sem voru innlimuð í Taíland fyrir meira en eitthundrað árum. Þau hafa hinsvegar aldrei runnið saman við Taíland og tungumál og siðir eru allt aðrir. Fyrir tuttugu og fimm árum, þegar hún var fimmtug, fór hún að heimsækja eiginmann sinn, sem vann í Malasíu. Á heimleiðinni tók hún vitlausa rútu og hvarf í 25 ár. Í stað þess að enda í litla þorpinu sínu endaði hún í Bangkok sem er 1200 kílómetrum Norðar. Þar reyndi hún að taka rútu til baka en fór þess í stað 700 kílómetra enn lengra í norður, til borgarinnar Chiang Mai. Fyrstu fimm árin þar sá hún sér farboða með betli, en þá var hún handtekin og komið fyrir á stofnun fyrir heimilislausa. Þar vann hún næstu tuttugu árin þartil svo vildi til að tveir ungir námsmenn úr heimahéraði hennar komu til vinnu á stofnuninni. Sér til mikillar furðu heyrði hún allt í einu fólk tala mál sem hún skildi. Og sér til mikillar furðu komst annað starfsfólk stofnunarinnar að því að hún var ekki mállaus. Hin 76 ára gamla Jaeyaena Beuraheng er nú aftur komin í faðm fjölskyldunnar.
Erlent Mest lesið Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent „Hann tók algjörlega völdin yfir lífi mínu“ Innlent Barn lést í brunanum á Stuðlum Innlent Þiggja milljónir í húsnæðisstyrk þótt þau búi nálægt Alþingi Innlent Þórdís svarar gagnrýni vegna húsnæðisstyrks Innlent „Þetta er nákvæmlega það sem ég á að vera að gera“ Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á Stuðlum Innlent Víðir verður oddviti Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi Innlent Nokkrir foreldrar sóttu börn á lögreglustöð Innlent Fluttur á spítala vegna alvarlegs efnabruna af völdum ætandi efnis Innlent Fleiri fréttir Aftur rafmagnslaust á Kúbu Sprengjudróni hæfði heimili Netanjahús Sér ekki á svörtu hjá „hinum útvalda“ Heita hertum reglum í hælisleitendamálum Ætlar ekki að leyfa Úkraínu að eignast kjarnorkuvopn Bar fram samsæriskenningar á fyrsta kosningafundinum Auðkýfingurinn ekki lengur grunaður um dauða eiginkonunnar Kim sagður ætla að senda tólf þúsund menn til Rússlands Telja árásir sænskra unglinga runnar undan rifjum Írana Hafa birt myndskeið af síðustu augnablikum Sinwar Dauði Sinwar tækifæri til að binda enda á stríðið Fall Sinwar „upphafið að endinum“ Staðfesta andlát leiðtoga Hamas Leiðtogi Hamas „líklega“ felldur „Einstök sýning“ á getu Bandaríkjanna í loftárásum Mætti á Fox í gær og á í viðræðum um viðtal við Rogan Biður um meiri pening vegna „fáránlegra“ laga Banna Ítölum að finna staðgöngumæður erlendis Hundrað ára Carter búinn að kjósa Eftirspurn eftir jarðefnaeldsneyti gæti náð hámarki á þessum áratug Opinberaði „siguráætlun“ sína á þingi Klófestu leigumorðingja sem dulbjó sig sem gamlan mann Metsekt fyrir að mismuna gyðingum og banna þeim að fljúga Lagði Trump til 10 milljarða króna á þremur mánuðum Halda áfram árásum á Beirút en með gult spjald frá Bandaríkjunum Hugmyndir uppi um „úrvinnslumiðstöðvar“ utan Evrópusambandsins Lauk afplánun fyrir teikningu dóttur sinnar Stofna herfylki skipað mönnum frá Norður-Kóreu Sagður ekki munu ráðast gegn olíu- né kjarnorkuinnviðum Kosningafundur breyttist í undarlegt diskótek Sjá meira