Heilsa

Brenndar möndlur

Ilm af brenndum möndlum leggur iðulega yfir jólamarkaði erlendis. Þær er með góðu móti hægt að gera heima við.nordicphotos/getty
Ilm af brenndum möndlum leggur iðulega yfir jólamarkaði erlendis. Þær er með góðu móti hægt að gera heima við.nordicphotos/getty

Ristaðar möndlur, eða „brenndar möndlur" eins og þær kallast iðulega á Norðurlandamálunum, eru ómissandi hluti af jólamörkuðum víðs vegar um heim. Það þarf ekki mikið til að ilm þeirra leggi yfir eldhús landsmanna, enda inniheldur uppskriftin aðallega möndlur og sykur. Bæði er hægt að nota strásykur og flórsykur, en þessi uppskrift, fáanleg á heimasíðu Dansukker, gerir ráð fyrir strásykri.

BRENNDAR MÖNDLUR

250 g möndlur með hýði

250 g strásykur

¾ dl vatn

Setjið möndlur, vatn og sykur í pott yfir háan hita, þangað til vatnið sýður og blandan fer að krauma. Hrærið oft í með trégaffli. Lækkið hitann þar til vatnið hefur gufað upp og sykurinn fer að kristallast. Hann á síðan að bráðna aftur, þannig að hann loði við möndlurnar í kekkjum. Hrærið stöðugt í.

Hellið blöndunni á bökunarpappír og skiljið að með gaffli. Á þessu stigi má einnig strá smá flórsykri yfir þær, svo þær festist síður saman. Einnig er hægt að blanda dálitlu af engiferi og kanil út í möndlublönduna, til að fá enn meira jólabragð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.