Viðskipti erlent

Enn titrar fjármálaheimurinn

Gengi helstu hlutabréfavísitalna í Bandaríkjunum féll á ný í dag eftir hækkun í gær. Þetta er svipuð þróun og á hlutabréfamörkuðum víða um heim í dag, þar á meðal hér á landi.

Atferli fjárfesta nú stjórnast af ótta við að enn sjái ekki til botns í þrengingum á fasteignamarkaði í Bandaríkjunum og geti svo farið að bankar og fjármálafyrirtæki þurfi að afskrifa frekari lán úr bókum sínum.

Til að bæta gráu ofan á svart sagði í minnispunktum bandaríska seðlabankans af síðasta vaxtaákvarðanafundi hans, sem birtir voru í gær, að líkur séu á nokkuð hægari hagvexti í Bandaríkjunum allt fram á næsta ár.

Fasteignalánafyrirtæki í Bandaríkjunum eiga mjög erfitt um þessar mundir, ekki síst eftir að bandaríska fjármálafyrirtækið Fannie Mae tilkynnti í gær að það þyrfti að afskrifa allt að tvær milljónir bandaríkjadala fasteignalán til viðbótar því sem áður hefur farið forgörðum úr bókum félagsins. Markaðsvirði félagsins hrundi í dag þegar gengi þess féll um 29 prósent og þykir fátt benda til að bandaríski fjárfestar komi til með að njóta Þakkargjörðarhátíðarinnar sem hefst um næstu helgi, að því er Associated Press greinir frá.

Dow Jones hlutabréfavísitalan lækkaði um 1,62 prósent og Nasdaq-vísitalan um 1,33 prósent. Vísitölurnar eiga hins vegar talsvert inni eftir hækkun ársins ólíkt íslensku Úrvalsvísitölunni sem hefur ekki verið lægri síðan snemma í janúar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×