Pat Riley ætlar að snúa aftur eftir stjörnuleikinn 13. febrúar 2007 02:11 Riley stefnir á að mæta í slaginn þann 21. febrúar þar sem Miami spilar tvö kvöld í röð í Texas - fyrst gegn Houston og svo þá gegn Dallas NordicPhotos/GettyImages
Harðjaxlinn Pat Riley mun snúa aftur í þjálfarastólinn hjá NBA meisturum Miami strax eftir stjörnuhelgi ef marka má fréttir sem láku út í gærkvöldi. Þetta mun verða formlega tilkynnt á blaðamannafundi á miðvikudaginn. Riley hefur verið frá keppni síðan í byrjun janúar þegar hann gekkst undir aðgerð á hné og mjöðm, en engum datt í hug að hann kæmi til baka fyrr en í fyrsta lagi undir vorið. Ron Rothstein aðstoðarþjálfari hefur verið við stjórnvölinn í fjarveru Riley, en gengi liðsins hefur heldur skánað á síðustu dögum og vikum og munar þar líklega mest um endurkomu Shaquille O´Neal úr meiðslum. Riley var spurður að því á sínum tíma hversu lengi hann teldi sig þurfa vera frá keppni vegna meiðslanna. Hann skaut sér undan þeirri spurningu og sagði það vera lækna að meta slíkt. Blaðamenn vísuðu þá til þess langa tíma sem það hefði tekið kollega hans Phil Jackson og Larry Brown að jafna sig eftir uppskurði - en Riley blés á það og sagðist miklu meiri nagli en þeir. Ef svo fer sem horfir og Riley stýrir Miami á ný þann 21. febrúar í Houston, er líklega nokkuð til í því.
NBA Mest lesið Hermann hættur með ÍBV Íslenski boltinn Fáránlegt hneyksli ofurhlaupara: Breyttu Wikipedia-síðum Sport Pabbinn fékk tattú á punginn Sport Pavel: „Ég var brjálaður vísindamaður“ Körfubolti Unga hjólreiðakonan látin Sport Pavel nýr liðsmaður Bónus Körfuboltakvölds Körfubolti Ætlar sér að vinna heimsleikana í Crossfit Sport Átján ára hjólreiðakona í lífshættu Sport Bestu guttarnir í Bestu deild karla Íslenski boltinn Svona var kynningarfundurinn fyrir fyrir Bónus-deildirnar Körfubolti Fleiri fréttir Pavel: „Ég var brjálaður vísindamaður“ Meisturunum spáð sigri í Bónus deildunum Svona var kynningarfundurinn fyrir fyrir Bónus-deildirnar Álftanes lét Frakkann fara og samdi við Okeke Pavel nýr liðsmaður Bónus Körfuboltakvölds Helena verður á skjánum í vetur Derrick Rose leggur skóna á hilluna Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sjá meira