Erlent

Notar bleyjur fyrir sex mánaða börn

Hann Antonio Vasconcelos, sem fæddist í Cancun í Mexíkó á mánudag, er enginn venjulegur strákur. Hann vó 27 merkur við fæðingu og mældist 55 sentimetrar á lengd.

Antonio, eða Super-Tonio, eins og starfsfólk fæðingardeildarinnar kallar hann, var tekinn með keisaraskurði þar sem ekki þótti á móður hans leggjandi að fæða þetta flikki. Kútnum heilsast vel enda svolgrar hann í sig mjólkurpela á þriggja tíma fresti. Ekkert annað en bleyjur fyrir sex mánaða börn duga á bossann á þessum risastrák.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×