Mótmælendur handteknir við Þjóðleikhúsið 17. júní 2007 18:54 Fáninn sem hópurinn kom fyrir á hlið Þjóðleikshússins. MYND/Saga
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók um klukkan hálf fimm í dag fimm einstaklinga fyrir brot á fánalögum. Hópurinn var búinn að setja upp stóra eftirmynd af íslenska þjóðfánanum á Þjóðleikhúsið þar sem stjóriðjustefnu stjórnvalda var mótmælt. Á fánanum var skjöldur með merkjum fyrirtækjanna Alcoa, Alcan og Norðuráls. „Okkur var sagt að við mættum ekki vanvirða íslenska fánann," sagði Saga Ásgeirsdóttir, einn mótmælenda, í samtali við Vísi. „Hins vegar virðist vera hægt að vanvirða allt það sem fáninn stendur fyrir." Hópurinn, sem samanstendur af fjórum Íslendingum og einum Bandaríkjamanni, var fluttur á lögreglustöð og þar var hver og einn látinn skrifa niður nafn og heimilisfang. Að því loknu var fólkinu sleppt. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu verður fólkið væntanlega kallað til yfirheyrslu og skýrslutöku seinna í vikunni. Ekki liggur fyrir hvort ákært verður í málinu en fólkið gæti meðal annars átt yfir höfði sér ákæru fyrir brot á fánalögum og fyrir að hafa farið upp á þak Þjóðleikshússins í leyfisleysi. Í yfirlýsingu sem hópurinn sendi frá sér kemur fram að með mótmælunum vildi hópurinn tjá þá skoðun sína að Íslendingar væru langt frá því að vera sjálfstæð þjóð því landið hafi verið tekið yfir af álfyrirtækjum.
Mest lesið Lést í umferðarslysi við Álfabakka Innlent Tuttugu og þrjár konur stíga fram og fórnarlömb raðnauðgara talin á sjöunda tug Erlent „Auðvitað lét ég hann heyra það“ Innlent Þingkonur þjarma að heilbrigðisráðherra Innlent Erlendir ferðamenn gripnir glóðvolgir Innlent Flugmaðurinn sem týndi herþotu tjáir sig Erlent Þurfa ekki að skila Stálskipaauðnum Innlent Handtökur hér á landi þegar stór barnaníðssíða var tekin niður Innlent „Þetta er bara brandarakvöld“ Innlent Stöðumælaverðir lausir við ákvörðun um sekt Innlent Fleiri fréttir Alþingi hafi átt að vera upplýst Stöðvuðu smygl á tuttugu þúsund Oxycontin-töflum Þrumustuð þegar lag Barnamenningarhátíðar var frumflutt Hinir handteknu alveg ótengdir Stjórnarformaður vísisjóðs nýr forseti Félagsvísindasviðs HÍ Engin virkni í sprungunni og umfangsmikil lögregluaðgerð Erlendir ferðamenn gripnir glóðvolgir Harma að upplýsingar hafi verið sendar út fyrir mistök Tveimur sleppt og þrír eftir í haldi Þingkonur þjarma að heilbrigðisráðherra Þurfa ekki að skila Stálskipaauðnum Furðar sig á undirritun án aðkomu Alþingis Vilja hagræða í Reykjavík og leita til borgarbúa Grindvíkingum hleypt inn í bæinn á ný Fimm ára nauðgunardómur stendur Boðar brottvísanir brotamanna og afnám átján mánaða reglu Handtökur hér á landi þegar stór barnaníðssíða var tekin niður Segir Viðreisn óforbetranlegan stjórnlyndisflokk Aðalmeðferð hafin í Menningarnæturmáli Bein útsending: Þjóðaröryggi – Íslendingar og hafið Stöðumælaverðir lausir við ákvörðun um sekt Svæðisstjóri Vegagerðarinnar sleginn vegna banaslyssins Möguleiki að kvikugangurinn opnist nærri Reykjanesbraut Möguleiki að gos hefjist norðanmegin en ólíklegt þó Af neyðarstigi og á hættustig 48 þúsund króna sekt fyrir að beita hund harðýðgi „Þetta er bara brandarakvöld“ Hafa núna skrifborð þar sem áður var flugstýri Meðalævilengd eykst milli ára og ungbarnadauði minnkar Lést í umferðarslysi við Álfabakka Sjá meira