Erlent

Samið um gassölu til Hvíta-Rússlands

MYND/AP

Stjórnvöld í Hvíta-Rússlandi og fulltrúar frá rússneska orkurisanum Gazprom gerðu snemma í morgun samning sem tryggir Hvít-Rússum gas frá fyrirtækinu næstu fimm árin.

Samningurinn var undirritaður örfáum klukkustundum áður en Rússar ætluðu að loka fyrir gas til Hvíta-Rússlands.

Verðið á gasinu í ár verður nokkuð lægra en Rússar kröfuðst en þó töluvert hærra en það sem Hvít-Rússar hafa hingað til greitt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×