Erlent

Óttast ólæti á Norðurbrú

Miklar óeirðir voru í Kaupmannahöfn í síðasta mánuði.
Miklar óeirðir voru í Kaupmannahöfn í síðasta mánuði. MYND/AP

Lögregla í Kaupmannahöfn er í viðbragðsstöðu vegna fyrirhugaðra mótmæla við félagsmiðstöð róttæklinga á Norðurbrú í dag. Til óeirða kom í síðasta mánuði fyrir framan húsið eftir að yfirvöld ákváðu að róttæklingarnir yrðu að yfirgefa húsið þar sem búið var að selja það.

Í vikunni heimilaði svo borgarstjórn Kaupmannahafnar að húsið yrði rifið eftir að heilbrigðisyfirvöld úrskuðu að það væri ekki lengur íbúðarhæft.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×