Viðskipti erlent

Nasdaq þrýstir á hluthafa LSE

Breska kauphöllin í Lundúnum.
Breska kauphöllin í Lundúnum. Mynd/AFP

Stjórn bandaríska hlutabréfamarkaðarins Nasdaq hefur þrýst á hluthafa í bresku kauphöllinni í Lundúnum (LSE) að þeir láti þvermóðsku stjórnar LSE ekki trufla sig og taki tilboði Nasdaq í markaðinn. Nasdaq telur LSE geta neyðst til að lækka gjöld sín vegna aukinnar samkeppni, ekki síst vegna stofnunar nýs hlutabréfamarkaðar í Evrópu sem fengið hefur heitið Project Turquoise.

Nasdaq hefur leitast nokkrum sinnum við að renna saman við bresku kauphöllina. Tilraunirnar hafa fram til þess verið árangurslausar þar eða stjórn LSE hefur vísað öllum tilboðum á bug með tilvísan í framtíðarhorfur markaðarins. Nasdaq fer nú þegar með tæpan 30 prósenta hlut í LSE.

Breska dagblaðið Telegraph vitnar í dag til tilkynningar sem stjórn Nasdaq sendi hluthöfum LSE fyrir skömmu en þar segir að þar sem sjö fjárfestingabankar hafi ákveðið að stofna nýjan hlutabréfamarkað í Evrópu geti svo farið að komið verði í veg fyrir framtíðarvöxt LSE. Gæti svo farið að markaðurinn breski þurft að neyðast til að lækka gjöld sín vegna þessa.

Telegraph segir sömuleiðis líkur á að hluthafar ætli að halda að sér höndum og sjá til hvort Nasdaq hækkar yfirtökutilboð sitt. Hins vegar kemur fram að svo kann ekki að vera. Tilboðið hljóðar upp á 2,7 milljarða punda eða tæpa 370 milljarða íslenskra króna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×