Erlent

Bandaríkjamenn gætu fjölgað í herliði sínu í Afganistan

Robert Gates, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna.
Robert Gates, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna. MYND/AP

Robert Gates, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, sagði í dag að Bandaríkjamenn gætu fjölgað í herliði sínu í Afganistan á næstunni. Hann var í Afganistan til þess að ræða við herforingja um stöðu baráttunnar þar í landi.

Búist er við því að talibanar eigi eftir að fjölga árásum eftir því sem líður á vorið og Bandaríkjamenn leggja mikla áherslu á að koma í veg fyrir sókn þeirra. Herforingjar sem Gates talaði við vildu því fjölga hermönnum í Afganistan. Þetta kom fram á fréttamannafundi sem Gates hélt í borginni Bagram í Afganistan í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×