Viðskipti erlent

Toyota innkallar 533.000 bíla

Japanski bílaframleiðandinn Toyota ætlar að innkalla rúmlega hálfa milljón sportjeppa af gerðinni Sequioa og Tundra pallbílum í Bandaríkjunum til að gera við galla í stýrisbúnaði.

Bílarnir, sem eru 533.000 talsins, voru framleiddir í verksmiðju fyrirtækisins í Bandaríkjunum á árunum 2004 til síðasta árs. Ellefu bílslys vestanhafs eru talin vera rakin til gallans.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×