Air France-KLM tvístígandi um Alitalia 24. janúar 2007 11:00 Jean-Cyril Spinetta, forstjóri Air France-KLM. Mynd/AFP
Ekkert liggur fyrir hvort fransk hollenska flugfélagið Air France-KLM ætli að leggja fram yfirtökutilboð í ítalska flugfélagið Alitalia eða hafi fallið frá því. Alitalia er að mestu í eigu ítalska ríkisins. Fjölmiðlar í Evrópu reikna með að Air France-KLM hafi í hyggju að kaupa hlut í ítalska félaginu við einkavæðingu þess. Talsmaður Air France-KLM hefur neitað að tjá sig við fjölmiðla um áætlanir flugfélagsins varðandi Alitalia, sem ítalska ríkið á 49,9 prósenta hlut í. Orðrómur hefur verið uppi um að flugfélagið ætli að boða til sérstaks hluthafafundar fyrir lok þessa mánaðar þar sem ákveðið verði hvort lagt verði fram tilboð í Alitalia. Franska dagblaðið La Tribune segir verðið sem sett var upp fyrir Alitalia hafa verið of hátt auk þess sem skuldastaða þess væri svo slæm að Air France-KLM hefði hætt við frekari kauphugleiðingar á ítalska félaginu. Krosseignarhald er á báðum flugfélögum og sat Jean-Cyril Spinetta, forstjóri Air France-KLM, í stjórn Alitalia allt fram til síðustu viku þegar hann sagði sig úr henni. La Tribune segir að stjórn Air France-KLM hafi síður en svo hætt að horfa til Alitalia og geti svo farið að bréf verði keypt í félaginu verði það einkavætt.
Erlent Fréttir Viðskipti Mest lesið Öllu starfsfólki kollagenvinnslu í Grindavík sagt upp Viðskipti innlent Lágvöruverðsverslunin Prís opnar í dag Neytendur Reiknar með því að Bónus sjái Prís sem áskorun Neytendur Temu kaupin getu hæglega orðið að fíkn Neytendur Litlu fyrirtækin: Upplifa sjálfbærni sem aukavinnu og vesen Atvinnulíf Verðstríð að hefjast á matvörumarkaði Neytendur Susan Wojcicki er látin Viðskipti erlent Google leiðin: Fjögur atvinnuviðtöl yfirdrifið nóg Atvinnulíf Ósáttur við að fyrrum eigandi Skagans 3X standi í vegi endurreisnar Viðskipti innlent Sprenging í sölu á sérsmíðuðum saunaklefum Samstarf Fleiri fréttir Susan Wojcicki er látin Ummæli Trump vekja áhyggjur af sjálfstæði seðlabanka Hlutabréfin ruku aftur upp degi eftir hrun Google beið lægri hlut í risavöxnu einokunarmáli Hrun í hlutabréfamörkuðum ytra Stærstu fyrirtækin orðið af 747 milljörðum Taylor Swift talin valda verðbólgu í Bretlandi Flytur fyrirtækin vegna löggjafar um trans börn Boeing samþykkir að játa sök og greiða 34 milljarða sekt Sjá meira