Metár hjá OMX-samstæðunni 1. febrúar 2007 10:16 Kauphöll Íslands.
Norræna kauphallarsamstæðan OMX skilaði 911 milljónum sænskra króna í hagnað á síðasta ári. Þetta jafngildir rúmum 8,9 milljörðum íslenskra króna. Tilsamanburðar nam hagnaðurinn árið 2005 543 milljónum sænskra króna, eða rúmum 5,3 milljörðum íslenskra króna. Forstjóri samstæðunnar segir síðasta ár hafa verið að mörgu leyti metár. Samstæðan keypti meðal annars Kauphöll Íslands í fyrra. Hagnaður OMX á fjórða ársfjórðungi í fyrra nam 296 milljónum sænskra króna, jafnvirði 2,9 milljarða íslenskra króna. Rekstrarhagnaður í fyrra nam 1,2 milljörðum króna, 11,8 milljörðum íslenskra króna, samanborið við 910 milljónir sænskra króna, eða rúmra 8,9 milljarða íslenskra króna. Hagnaðurinn á fjórða ársfjórðungi nam 355 milljónum sænskra króna, jafnvirði tæpra 3,5 milljarða íslenskra króna, sem er 92 milljóna sænskra króna hækkun á milli ára. Haft er eftir Magnusi Böcker, forstjóra OMX, í tilkynningu að síðasta ár hafi á margan hátt verið metár hjá OMX en bæði tekjur hafi verið með hæsta móti auk þess sem rekstrarafkoman hafi aldrei verið betri. Hagnaður á hlut jókst um 64 prósent miðað við árið á undan og arðsemi eigin fjár nam 20 prósentum. „Eftir nokkurra ára tímabil uppbyggingar hefur OMX nú náð sterkri stöðu meðal kauphalla á alþjóðavettvangi en kauphallamarkaðurinn einkennist af örum vexti," segir hann. <a href="http://news.icex.is/newsservice/MMIcexNSWeb.dll/newspagepf?language=is&pagetype=&primarylanguagecode=is&newsnumber=36615" target="new_">Uppgjör OMX</a>
Erlent Fréttir Viðskipti Mest lesið Kaupum meira og meira þrátt fyrir mikla verðbólgu Neytendur Lágvöruverðsverslunin Prís opnar í dag Neytendur Reiknar með því að Bónus sjái Prís sem áskorun Neytendur Ritúalið verður að Skjóli Viðskipti innlent Öllu starfsfólki kollagenvinnslu í Grindavík sagt upp Viðskipti innlent Temu kaupin getu hæglega orðið að fíkn Neytendur Ósáttur við að fyrrum eigandi Skagans 3X standi í vegi endurreisnar Viðskipti innlent Verðstríð að hefjast á matvörumarkaði Neytendur Litlu fyrirtækin: Upplifa sjálfbærni sem aukavinnu og vesen Atvinnulíf Google leiðin: Fjögur atvinnuviðtöl yfirdrifið nóg Atvinnulíf Fleiri fréttir Susan Wojcicki er látin Ummæli Trump vekja áhyggjur af sjálfstæði seðlabanka Hlutabréfin ruku aftur upp degi eftir hrun Google beið lægri hlut í risavöxnu einokunarmáli Hrun í hlutabréfamörkuðum ytra Stærstu fyrirtækin orðið af 747 milljörðum Taylor Swift talin valda verðbólgu í Bretlandi Flytur fyrirtækin vegna löggjafar um trans börn Boeing samþykkir að játa sök og greiða 34 milljarða sekt Sjá meira