Handbolti

Stjarnan heldur sínu striki

Stjarnan heldur sínu striki í DHL-deild kvenna í handbolta en í dag vann liðið öruggan sigur á FH, 39-15. Stjarnan hefur fjögurra stiga forskot á Valsstúlkur sem unnu góðan sigur, 24-22, á Haukum. Stjarnan hefur hlotið 24 stig eftir 14 leiki en Valur 20 stig eftir 13 leiki.

Haukar eru áfram í 4. deildarinnar eftir tapið í dag með 18 stig, en í þriðja sæti er Grótta með 20 stig.

Tveir aðrir leikir voru á dagskrá í DHL-deild kvenna í dag. Fram vann góðan útisigur á ÍBV, 22-20, og HK vann Akureyri, 23-19, í Digranesinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×