Sport

Collazo átti ekki möguleika í Mosley

Shane Mosley sést hér með sigurbeltið ásamt þjálfurum sínum eftir bardagann í nótt.
Shane Mosley sést hér með sigurbeltið ásamt þjálfurum sínum eftir bardagann í nótt. MYND/Getty

Bandaríkjmaðurinn Shane Mosley tryggði vann öruggan sigur á landa sínum Luis Collazo þegar kapparnir mættust í hringnum í Las Vegas í nótt. Hinn 35 ára gamli Moseley sem er þrefaldur heimsmeistari var mun sneggri og höggfastari þó hann sé 10 árum eldri en Collazo.

Þeir börðust í 12 lotur og var það einróma ákvörðun dómara að Moseley teldist sigurvegari um beltið í veltivigt í nótt en bardaginn var sýndur beint á Sýn. 

”Mér fannst ég vera mjög léttur á fæti í þessum bardaga. Ég vissi að ég væri sneggri en hann og átti auðvelt með að hitta hann með stungum. Ég hafði það strax í 1. lotu á tilfinningunni að ég myndi vinna þennan bardaga,” sagði Mosley eftir sigur sinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×