Erlent

Ætlar borgin að rífa húsið strax í dag?

Mynd/TV2

Ungmenni sem haft hafa aðstöðu í Ungdomshuset hafa kveikt elda á Nörrebrogade og henda nú grjóti og flöskum í átt að lögreglu sem stendur vakt um Ungdomshuset í Kaupmannahöfn. Samkvæmt heimildum Vísis ætlar lögregla að standa vörð um húsið í dag á meðan stórvirkar vinnuvélar koma og rífa það niður, þetta er þó ekki staðfest. Þá munu ungmenni vera að skipuleggja tilraun til að komast aftur inn í húsið.


Tengdar fréttir

Lögregla rýmdi Ungdomshuset

Lögreglan í Kaupmannahöfn gerði áhlaup og rýmdi Ungdomshuset á Norrebro á svipstundu í morgun. Þegar hefur fjöldi mótmælanda safnast saman og búist er við hörðum átökum. Lögregla hefur handtekið um 20 mótmælendur, þ.á.m. hóp sem reyndi að komast framhjá vegtálmum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×