Sport

Kawasaki kemur með Vulcan "Custom"

Kawasaki Vulcan 1600 Mean Streak Custom
Kawasaki Vulcan 1600 Mean Streak Custom MYND/Kawasaki.com

Kawasaki hefur flett hulunni af Kawasaki Vulcan 1600 Mean Streak Custom. Hjólið er hið allra glæsilegasta og sker sig frá öðrum hjólum. Svart matt lakk prýðir hjólið ásamt rauðum og gráum eldstrípum. Grindin á hjólinu er rauð ásamt felgum.

Hjólið er með 1600cc mótor V-twin sem skilar 80 hestöflum og 125 NM í tog. Fréttamaður visir.is hafði samband við Hauk Þorsteinsson í mótorhjólaversluninni Nítró og spurði hann um nýja hjólið. Haukur sagði að hann væri að fá þetta hjól og væri líklega tveir mánuðir í að hjólið komi á klakann, ekki er komið verð á gripinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×