Sport

Klitschko fór létt með Austin

Dómarinn Eddie Cotton telur yfir Ray Austin í bardaganum í nótt. Andartökum síðar var bardaginn stöðvaður, enda Austin illa vankaður.
Dómarinn Eddie Cotton telur yfir Ray Austin í bardaganum í nótt. Andartökum síðar var bardaginn stöðvaður, enda Austin illa vankaður. MYND/Getty

Úkraínski hnefaleikakappinn Vladimir Klitschko varði IBF-heimsmeistaratitil sinn í þungavigt í nótt með því að sigra Bandaríkjamanninn Ray Austin í bardaga þeirra í Þýskalandi. Austin reyndist Klitschko auðveld bráð og var bardaginn stöðvaður strax í annari lotu.

Klitschko kom mjög einbeittur til leiks og lét högginn dynja á Austin frá fyrstu sekúndu. Í annari lotu náði hann góðri rispu sem endaði með því að Austin féll í gólfið. Hann stóð aftur upp en dómari bardagans, Eddie Cotton, sá hvert í stefndi og stöðvaði bardagann.

Þetta var í annað sinn í röð sem Klitschko nær að verja titil sinn en í apríl á síðasta ári hafði hann betur gegn áskorandanum Chris Byrd frá Bandaríkjunum. Klitschko hefur nú keppt í 51 bardaga á sínum ferli og sigrað í 48 þeirra. Þar af hafa 43 sigrar komið eftir rothögg.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×