Handbolti

Stjarnan burstaði HK

Rakel Dögg Bragadóttir
Rakel Dögg Bragadóttir Mynd/Daníel Rúnarsson

Stjörnustúlkur eru enn á toppi DHL-deildar kvenna í handbolta eftir sannfærandi sigur á HK í gærkvöld 40-26 eftir að hafa verið yfir í hálfleik 20-11. Rakel Dögg Bragadóttir skoraði 8 mörk fyrir Stjörnuna, sem hefur tveggja stiga forystu á Val og á leik til góða.

Valur lagði ÍBV 29-20 í Vestmannaeyjum, bikarmeistarar Hauka lögðu granna sína í FH 31-29 og loks burstaði Grótta Fram 27-16 á útivelli. Stöðuna í deildinni er að finna á Boltavaktinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×