Tónlist

Tónleikar til styrktar Ljósinu

Múm, Pétur Ben og Ólöf Arnalds munu skapa magnaða upplifun í einstöku andrúmslofti Fríkirkjunnar í kvöld. Tónleikarnir eru í minningu Margrétar Jónsdóttur sem lést úr krabbameini fyrir rúmu ári síðan, aðeins 24 ára gömul.

Ágóðinn mun allur renna til Ljóssins sem er endurhæfingar og stuðningsmiðstöð fyrir krabbameinsgreinda og aðstandendur þeirra. Glitnir ætlar að tvöfalda upphæðina sem safnast svo þegar þið kaupið miða á 1200 krónur þá fara 2400 krónur til Ljóssins.

Einnig er hægt að leggja beint inn á reikning Ljóssins 0513-14-606806 Kt. 590406-0740.

Heimasíða Ljóssins er Ljosid.org

Forsala aðgöngumiða fer fram í 12 tónum og Glitni Smáralind, Kringlunni og Kirkjusandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.